UM PRAKT | Íslensk skartgripahönnun á Laugavegi
Að baki PRAKT stendur gullsmíðaparið Sigríður Edda Bergsteinsdóttir og Þorbergur Halldórsson. Edda og Beggi, eins og þau eru kölluð í daglegu tali, höfðu fyrir stofnun PRAKT starfað saman að mörgum verkefnum innan fagsins, bæði heima og erlendis, en þau deila sameiginlegri ástríðu fyrir gullsmíði þar sem hönnun og vönduð smíði fara saman. Þau ákváðu að sameina ólíka bakgrunna sína árið 2020 þegar þau opnuðu verslun og skartgripaverkstæði að Laugavegi 82 í Reykjavík undir nafninu PRAKT.
Sameiginleg vegferð Eddu og Begga í íslenskri skartgripahönnun einkennist af samstarfi tveggja ólíkra reynsluheima þar sem nútímalegar aðferðir og klassískt handverk sameinast í eitt.
„Fyrir okkur er heimur skartgripanna sem við höfum skapað saman í PRAKT órjúfanlegur hluti af lífi okkar. Við leggjum metnað okkar í að hanna og smíða skartgripi þar sem gæði umfram magn ræður för. Skartgripi sem búa yfir sál og sögu sem skapar varanlegt gildi þeirra.“ Segja þau Edda og Beggi um sameiginlega sýn þeirra.
Í skartgripunum frá PRAKT endurspeglast þessi sýn þeirra, allt frá skartgripum sem fanga áferð íslenskrar náttúru, eins og Hraun og Birki skartgripalínurnar, yfir í SEB skartgripina frá Eddu sem búa yfir norrænum tón og einfaldleika. Beggi færir PRAKT áratuga reynslu sem gullsmíðameistari og þá fágætu faglegu þekkingu sem til þarf við smíði hinnar íslensku fálkaorðu.
Við bjóðum ykkur velkomin í PRAKT á Laugaveginn, þar sem nútíma hönnun og klassísk hefð mætast.
Allir skartgripirnir okkar eru hannaðir og smíðaðir á verkstæðinu að Laugavegi 82.