Skilmálar

1. Almennt.

Skilmálar þessir gilda um sölu á vöru og þjónustu frá PRAKT ehf, kt. 530194 – 3459, Laugavegur 82, 101 Reykjavík til neytenda. Skilmálarnir eru staðfestir samhliða kaupum og skilgreina réttindi og skyldur seljanda og kaupanda. Allir samningar teljast gerðir á íslensku og um þá gilda íslensk lög. Með því að staðfesta pöntun í netverslun samþykkir kaupandi að hafa kynnt sér og gengist undir skilmála þessa. Um neytendakaup gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um neytendasamninga nr. 16/2016.

2. Skilaréttur og skipti.

Hægt er að skipta vörum eða fá inneignarnótu innan 14 daga frá kaupum í verslun okkar, gegn framvísun sölukvittunar, að því gefnu að varan sé ónotuð. Vörur sem keyptar eru í versluninni eru ekki endurgreiddar.

Um kaup á vörum í netverslun gildir lögboðinn réttur kaupanda á að falla frá kaupum og fá vöruna endurgreidda að fullu, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga og reglugerð um neytendavernd í fjarsölu nr. 0435/2016. Fresturinn til að falla frá kaupum er 14 dagar frá þeim degi sem kaupandi, eða viðtakandi pöntunarinnar, fær vöruna afhenta frá flutningsaðila. Til þess að nýta réttinn til að falla frá samningi ber neytandi ábyrgð á rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð hennar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar, sbr. 4. mgr. 22. gr. laga nr. 16/2016. Tilkynna þarf ákvörðunina áður en frestur rennur út með því að fylla út rafrænt vöruskilaform hér: Skilmálar/Returns.

Athugið að kaupandi ber beinan kostnað af því að senda vöruna til baka, hvort sem um er að ræða sendingar innanlands eða utan. Kjósi kaupandi utanlands að falla frá kaupum, mun PRAKT senda kaupanda sérstakt eyðublað sem kaupanda ber að fylla út og láta fylgja með sendingunni fyrir innlend tollayfirvöld.

Ef fallið er frá samningi vegna kaupa í netverslun endurgreiðir PRAKT allar greiðslur sem fengist hafa frá kaupanda, þar með talinn sendingarkostnaðinn sem greiddur var við pöntun. Endurgreiðsla fer fram eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning berst frá kaupanda, en við áskiljum okkur rétt til að bíða með endurgreiðsluna þar til varan er komin aftur til okkar eða kaupandi hefur lagt fram sönnun fyrir endursendingu hennar. Endurgreiðslan er framkvæmd með sama greiðslumiðli og notaður var við upphaflegu kaupin.

Undantekningar frá skilarétti: Í samræmi við ákvæði laga um neytendasamninga fellur skilaréttur í verslun og réttur til endurgreiðslu á kaupum í netverslun niður þegar um er að ræða: Vörur sem framleiddar eru samkvæmt sérstökum óskum og forskrift kaupanda og vörur sem hafa verið sérsniðnar eða áletraðar sérstaklega að ósk kaupanda.

Stærðarbreytingar á hringum: Til að koma til móts við viðskiptavini okkar er ein stærðarbreyting á hringum innifalin í kaupverðinu ef hún er gerð innan 30 daga frá kaupdegi. Séu hringar sendir með pósti til stærðarbreytinga, greiðir kaupandi sendingarkostnaðinn.

3. Upplýsingar um vörur og verð.

Pöntun í netverslun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda, sem á sér stað þegar kaupandi staðfestir pöntun í greiðslugátt. Seljandi er sömuleiðis bundinn til að afgreiða pöntunina svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Kaupandi fær senda staðfestingu á pöntun í tölvupósti og er hvattur til að yfirfara hana vandlega til að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun. PRAKT áskilur sér fullan rétt til að afturkalla pantanir ef vaknar rökstuddur grunur um svik eða misnotkun.

Vöruúrval getur verið mismunandi milli netverslunar og verslunar PRAKT. Ef vara reynist uppseld áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni í heild eða að hluta. Undir þeim kringumstæðum verður kaupanda boðin önnur sambærileg vara, full endurgreiðsla, eða möguleiki á að láta smíða viðkomandi skartgrip ef hann er hluti af vöruúrvali PRAKT og aðstæður leyfa.

Öll verð sem birtast í netversluninni og í verslun PRAKT eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda 24% íslenskan virðisaukaskatt (VSK). Um verðmerkingar fer samkvæmt reglum nr. 536/2011. PRAKT áskilur sér rétt til fyrirvaralausra verðbreytinga og til að taka vörur úr sölu án fyrirvara.

Við birtum allar upplýsingar með fyrirvara um augljós birtingar-, innsláttar- eða kerfismistök, t.d. ef verð skráist augljóslega rangt vegna tæknilegra galla. Í slíkum tilfellum áskilur PRAKT sér fullan rétt til að leiðrétta pöntunina í samræmi við rétt verð eða rifta kaupunum í heild sinni, enda hafi kaupanda mátt vera ljóst að um augljósa villu var að ræða.

4. Greiðsla.

Í netverslun PRAKT er tekið á móti greiðslum með helstu kredit- og debetkortum í gegnum örugga greiðslugátt Teya, auk þess sem í boði er að greiða með Netgíró sé um innlendar pantanir að ræða.

Um Teya: Teya er greiðslu- og hugbúnaðarlausn sem sér um allar kortaheimildir og færslur fyrir netverslunina. Allar kortagreiðslur fara í gegnum dulkóðaða og örugga greiðslugátt Teya. Teya er með PCI-öryggisvottun, sem þýðir að öll kerfi og rekstur uppfylla ströngustu öryggiskröfur PCI-staðalsins.

Um Netgíró: Netgíró býður upp á örugga greiðslumiðlun þar sem viðskiptavinir Netgíró geta valið á milli þess að greiða með 14 daga greiðslufresti eða dreifa greiðslum samkvæmt skilmálum Netgíró. Allar greiðslur og auðkenningar fara í gegnum dulkóðaða vefgátt Netgíró þar sem krafist er auðkenningar með rafrænum skilríkjum til að tryggja fyllsta öryggi.

Pöntun í netverslun er ekki staðfest eða tekin til afgreiðslu fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu. PRAKT geymir aldrei kortaupplýsingar kaupenda. Þegar vörur eru keyptar á heimilisfang utan Íslands dregst íslenski virðisaukaskatturinn (24%) sjálfkrafa af vörunni á greiðslusíðunni, sjá nánar um tolla í lið 5.

5. Sendingar, afhendingartími og tollar.

Innanlands: Þegar vara er pöntuð í netverslun er hægt að velja á milli þess að fá vöruna senda með Íslandspósti eða sækja hana í verslun PRAKT. Við gerum okkar besta til að afhenda vörur í verslun 1-2 virkum dögum eftir að pöntun berst. Afhendingartími pantana sem berast með Íslandspósti er yfirleitt 3–5 virkir dagar. Búast má við lengri afhendingartíma í kringum hátíðir.

Utanlands: Við bjóðum upp á að fá vörur sendar utanlands með DHL. Fast sendingargjald að upphæð 4.000 kr. er á erlendum sendingum með DHL og kemur það fram í greiðsluferli pöntunar. Kaupandi fær sendan tölvupóst frá DHL með rekjanlegu númeri sendingar þegar pöntunin fer af stað frá okkur. Afhendingartími pantana sem berast með DHL er yfirleitt 5 – 7 virkir dagar, háð landi og svæði. Búast má við lengri afhendingartíma í kringum hátíðir.

Tollar og erlend aðflutningsgjöld: Þegar vörur eru keyptar á heimilisfang utan Íslands dregst íslenski virðisaukaskatturinn (24%) sjálfkrafa af vörunni á greiðslusíðu í netverslun. Vakin er sérstök athygli á því að kaupandi ber einn og sér ábyrgð á að greiða tolla, innflutningsskatta og tengd umsýslugjöld flutningsaðila sem kunna að leggjast á pöntunina í hans heimalandi. Þessi gjöld eru ekki innifalin í sendingarkostnaðinum og PRAKT ber ekki skylda til og getur ekki ábyrgst þann kostnað sem leggst á vöru við komuna til heimalands kaupanda. Hafi kaupandi spurningar varðandi gjöld í sínu heimalandi er honum bent á að hafa samband við viðkomandi tollayfirvöld.

Ef afhendingu vöru seinkar verulega mun seljandi upplýsa kaupanda um nýjan afhendingartíma eða bjóða kaupanda endurgreiðslu á kaupum.

6. Ábyrgðarskilmálar og gallar

Ef vara reynist gölluð býður PRAKT viðskiptavini nýja vöru í staðinn eða endurgreiðslu ef viðskiptavinurinn óskar frekar eftir því. PRAKT greiðir allan sendingarkostnað sem hlýst af skiptunum. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á netfangið prakt@prakt.is með upplýsingum um galla vörunnar. Tilkynningafrestur vegna galla er almennt tvö ár en fimm ár ef vöru er ætlaður verulega lengri endingartími sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup.

Framvísa skal sölukvittun sem fylgir vörunni þegar komið er með vöru til viðgerðar. Ábyrgðin tekur aðeins til framleiðslugalla sem sannarlega koma fram í vörunni á ábyrgðartímanum. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á vöru eins og t.d. rispum eða öðrum óhöppum sem leiða til skemmda á vörunni. Að öðru leyti vísast til laga um neytendasamninga nr. 16/2016.

Um ábyrgð PRAKT á vörum fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 48/2003, um neytendakaup, í tilviki neytendakaupa. Samkvæmt 7. gr. laganna telst söluhlutur afhentur þegar neytandi hefur veitt honum viðtöku og áhætta af hlutnum flyst yfir til neytanda þegar söluhlutur hefur verið afhentur, sbr. 1. mgr. 14. gr. laganna.

Yfirferð á vörum og eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda.

7. Úrlausn vafamála

Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Vilji neytandi koma kvörtun á framfæri við seljanda skal hafa samband á tölvupósti: prakt@prakt.is.

Neytendur geta skotið ágreiningsmálum vegna viðskipta við PRAKT til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105 Reykjavík. Vefslóð á vefsíðu nefndarinnar er eftirfarandi: www.kvth.is

Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.