Hraun 2 – Silfur stafahálsmen
Fallegt stafahálsmen með náttúrulegri hraun áferð, fullkomið við öll tækifæri.
Til í rhodium-húðuðu silfri og gullhúðuðu silfri, og þremur keðjusíddum: 42, 45 og 50 cm.
Hraun 2 er klassísk en um leið óvenjuleg skartgripalína, sem inniheldur úrval af hálsmenum, eyrnalokkum, hringum og armböndum. Skartgripirnir eru byggðir upp af hringforminu og inn í það blandað saman grófu yfirborði af íslensku hrauni. Yfirborð hraunsins er gert eftir nákvæmri afsteypu af innra yfirborði íslensks hraunsteins. Andstæðurnar í yfirborðinu minna okkur á fjölbreytileika og þann kraft sem býr í íslenskri náttúru.