Öldur & Hvalur
Öldur og hvalur er ný skartgripalína frá PRAKT sem frumsýnd er á HönnunarMars. Að baki PRAKT er gullsmiðaparið Edda Bergsteinsdóttir og Þorbergur Halldórsson.
Í Öldum og hval eru formin sótt í mýkt öldunnar og söng hvalsins og framkölluð í eðalmálma á verkstæði þeirra við Laugaveg.
„Við sóttum innblásturinn í tign hvalsins og máttuga söngva hans sem bergmála um höfin í takt við hreyfingar aldanna. Öldur og hvalur er óður til hvalsins og mikilvægi hans sem verndara vistkerfis hafsins, án hans væri djúpið hljótt,“ segja þau um upphafið að skartgripalínunni.
Sameiginleg vegferð Eddu og Begga í skartgripahönnun einkennist af samstarfi tveggja ólíkra bakgrunna, formrænni festu sem einkennir þrívíddar hönnun Eddu og klassísku handverki Begga, sem meðal annars hefur séð um smíði Fálkaorðunnar til fjölda ára. Fyrir þeim er skartgripaheimurinn sem þau hafa skapað saman í PRAKT órjúfanlegur hluti af lífinu og leggja þau metnað sinn í gæði umfram magn við smíði skartgripanna. Í Öldum og hval flæða heimar þeirra beggja og sameiginleg ástríða fyrir hönnun og handverki saman, þar sem nútímaleg hönnun og rík hefð mætast undir taktföstum öldum hafins og söng hvalsins.
Öldur og hvalur er frumsýnd á HönnunarMars í verslun PRAKT á Laugavegi 82 og kemur í vefverslun síðar í sumar. Skartgripirnir eru til sölu í verslun okkar, en einnig er velkomið að hafa samband með tölvupósti á prakt@prakt.is fyrir nánari upplýsingar og pantanir.
Hægt er að fylgjast með því þegar línan kemur í vefverslunina og fá fréttir af nýjungum með því að skrá netfang á póstlista PRAKT hér neðst á síðunni.