Afhending.
Frí heimsending um land allt.
Pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda almennir afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. PRAKT tekur enga ábyrgð á vörum eftir að þær hafa verið póstlagðar.
Afgreiðsla pantana er 2 – 5 virkir dagar eftir að pöntun berst okkur. Við sendum staðfestingu þegar pöntun fer frá okkur. Sendingartími er 2-4 virkir dagar að jafnaði.
Prakt.is tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun Íslandspóstur senda pöntunina til baka og lendir tilfallandi kostnaður á kaupanda.
Skilafrestur eða endurgreiðsla.
Skilafrestur er 14 dagar frá þeim degi sem pöntunin berst til þín og skal ósk um skil berast með tölvupósti á prakt@prakt.is.
Einungis er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og í upprunalegum umbúðum. Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin aftur í hendur seljanda.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við þá allan þann kostnað sem gæti komið upp við sendingu.
Persónuupplýsingar og trúnaður.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing.
Viðskipti við PRAKT.IS er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.