SEB HRAFN HÁLSMEN
23.900 kr.
Gullhúðað Sterling silfur / Oxíderað Sterling silfur / Rhodium húðað Sterling silfur.
Hrafninn er vitur fugl, tákn visku, væntumþykju og langlífis jafnt sem dauða. Samkvæmt þjóðsögum er hann gæddur spádómsgáfu og í norrænni goðafræði færðu hrafnar Óðins, þeir Huginn og Muninn, fregnir af því sem fram fór í heiminum. Þessi dularfulla orka sem umlykur hrafninn birtist hér í hreinu geometrísku formi sem tákn um innsæi, sjálfstæði og kjark.
Eðalmálmur: Gullhúðað Sterling silfur / Oxíderað Sterling silfur / Rhodium húðað Sterling silfur.
Keðjulengd: 42-49 cm.
Hálsmen stærð: 38 x 22,5 mm.
Vörulína: SEB Fuglar og Vængir.
Um oxíderað Sterling silfur:
Oxídering er ekki hart yfirborð á silfrinu og þess vegna framkallast silfrið á efsta yfirborði skartgripsins fram við notkun hans,
við það kemur dýpt í skartgripinn sem gefur honum persónulegt yfirbragð.
